Það er oft sem ég hjóla frá heimili mínu í hamraborg en gangstéttir eru annað hvort steinalagðar eða þröngar fyrir gangandi og hjólandi. Það væri æðislegt að hafa hjólastíga í Hamraborginni og út Kársnesið svo gangandi og hjólandi vegfarendur hafa gott pláss og viðeigandi stétt sem hentar hjólum.
Hjólastígur úr Garðabæ og Reykjavík slitnar í hamraborginni og er án efa óþæginlegasti spölurinn á þeirri ferð. Best væri að tengja þennan hjólastíg og leggja hjólastíg út kársnesið fyrir þæginlegri umferð hjólandi vegfarenda.
Þetta er tillaga sem hittir naglan á höfuðið. Að auki þegar hjólað er til og frá Kársnesi út á Digraneshæð þarf að fara inn í og í gegnum erfiða umferð. Þarf að bæta fyrir hjólandi í allar áttir gegnum Hamraborg.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation